Markús til Alfa Framtaks

Markús Hörður Árnason er nýr fjárfestingastjóri hjá Alfa Framtak.

Markús Hörður Árnason hefur gengið til liðs við Alfa Framtak sem fjárfestingastjóri.

Markús hefur víðtæka reynslu á fjármálamarkaði, en undanfarin ár hefur hann gengt stöðu framkvæmdastjóra fjárfestinga hjá TM. Fyrir tíma sinn hjá TM vann hann hjá fjárfestingarfélaginu Stoðum og Landsbankanum. Markús hefur einnig gengt fjölmörgum stjórnarstörfum á undanförnum árum. Markús er með B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Eftir farsæl þrettán ár í starfi við stýringu fjárfestinga TM verður spennandi að takast á við nýjar áskoranir með Alfa Framtak. Félagið hefur náð góðum árangri með Umbreytingu I og mun ég leggja mitt af mörkum við að ná sem bestum árangri í næsta sjóð fyrir þá sem treysta Alfa Framtak fyrir sínu fjármagni.“ segir Markús Hörður Árnason.

Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Alfa Framtaks, segir það feng að fá Markús til liðs við félagið. „Það er fengur fyrir Alfa Framtak að fá Markús til liðs við okkur. Framundan eru stór verkefni, sem fela í sér að efla þau fyrirtæki sem við höfum nú þegar fjárfest í og að koma nýjum framtakssjóði úr höfn. Markús býr yfir þekkingu og reynslu sem mun reynast dýrmæt á þeirri vegferð sem við erum á.”

Alfa Framtak er rekstraraðili sérhæfðra sjóða með áherslu á framtaksfjárfestingar. Fyrirtækið rekur sjóðinn Umbreyting I slhf. og vinnur nú að söfnun nýs sjóðs Umbreyting II slhf. Hingað til hafa sjóðir félagsins fjárfest í sex verkefnum þ.e. – Nox Health, Borgarplast, Grafa og Grjót, Greiðslumiðlun Íslands, Málmsteypa Þorgríms Jónssonar og Nordic Visitor.

Viðskiptablaðið, 21. október 2021

Previous
Previous

Samruni Nordic Visitor og Iceland Travel samþykktur

Next
Next

Brynja ráðin forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands