alfa framtak

Ástæðan

Stefnan okkar

Áhrifafjárfestingar

Fjárfestingarstefna Alfa Framtaks snýst ekki bara um arðsemi. Hún fer víðar og lengra.

Við brennum fyrir því að hafa jákvæð áhrif í stóra samhenginu. Það þýðir að við leitumst ekki aðeins við að auka arðsemi, heldur viljum við einnig vera jákvætt hreyfiafl fyrir fyrirtæki, fólk og samfélagið allt. Við viljum renna styrkum stoðum undir fjölskyldurekin fyrirtæki og veita íslenskum vörumerkjum stökkpall inn á alþjóðasviðið. Við viljum hlúa að framtakssemi fólks til þess að auka veg íslensks atvinnulífs.

Þegar allt kemur til alls má lýsa þessari lífssýn með hugtakinu áhrifafjárfestingar.

Hornsteinarnir okkar

Alfa Framtak í hnotskurn

Áhrifarík
Við búum yfir farsælli sögu fjárfestinga sem hafa skapað verðmæti og haft góð áhrif á samfélagið.

Staðföst
Við erum virkir fjárfestar og fjárfestum sjálf í verkefnum okkar. Við erum í þessu saman alla leið.

Sjálfstæð
Við erum sjálfstæð og óháð. Það veitir okkur rými til þess að vera sveigjanleg í vinnubrögðum og ákvörðunum.

Íslensk
Við skilum áþreifanlegum árangri og skiljum eftir okkur jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.

Okkar áhrif

Við komum hreyfingu á það sem máli skiptir

Sem samstarfsaðili beitum við okkur fyrir umbreytingum sem hafa jákvæð áhrif.

Við hreyfum við

Fjármagni

Þvert á atvinnugreinar og landamæri.

Með því að hreyfa við

Fyrirtækjum

Hvort sem þau eru fjölskyldurekin eða stórfyrirtæki.

Til þess að hreyfa við

Fólki

Við veitum fyrirtækjum réttu verkfærin til þess að hreyfa við fólki, samfélaginu og Íslandi.