Móðurfélag Nordic Visitor verður Travel Connect

Móðurfélag Nordic Visitor, Iceland Travel og Terra Nova hefur hlotið nafnið Travel Connect. Við sameininguna verður til eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins.

Samkeppniseftirlitið heimilaði í október kaup Nordic Visitor á ferðaskrifstofunni Iceland Travel sem var áður í eigu Icelandair Group. Árið 2019 keypti Nordic Visitor ferðaskrifstofuna Terra Nova af Arion banka. Magma Hotel á Kirkjubæjarklaustri og rekstur Iceland Tours og Nine Worlds er sömuleiðis í eigu nýs sameinaðs félags.

Fram kemur í tilkynningu frá Travel Connect að fyrirtækin muni öll starfa áfram sjálfstætt undir nýju móðurfélagi.

„Fyrirtækin eru hvert um sig leiðandi á sínu sviði og búa að sterkum viðskiptasamböndum. Með öflugu og reynslumiklu starfsfólki verður lögð áhersla á að deila þekkingu á milli fyrirtækjanna og mynda sterka heild í faglegri þjónustu við erlenda ferðamenn.“

Ásberg verður framkvæmdastjóri sameinaðs félags

Nordic Visitor er einnig með starfsemi í Svíþjóð og Skotlandi en hátt í 200 manns starfa hjá sameinuðu félagi. Ásberg Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Nordic Visitor, verður nýr framkvæmdastjóri Travel Connect.

Við breytingarnar tekur Sigfús Steingrímsson við starfi framkvæmdastjóra Nordic Visitor en hann leiddi áður bókunar- og þróunardeild fyrirtækisins.

„Fyrirtækin eru að mörgu leyti ólík en með samrunanum viljum við efla faglegan grunn þjónustunnar og styrkja okkar samkeppnishæfni gagnvart sambærilegum erlendum fyrirtækjum. Ég hef trú á því að ferðaþjónusta á Íslandi muni fljótt ná fyrri styrk og að öflugt samstarf fyrirtækjanna styðji við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu” segir Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Travel Connect, í tilkynningu.

„Þetta er gríðarlega spennandi verkefni. Staða Nordic Visitor er sterk og við sjáum mikil sóknarfæri í stöðunni sem er að skapast eftir faraldur og skert ferðafrelsi. Salan hefur aukist jafnt og þétt síðustu mánuði og ljóst að áfangastaðir okkar í norðanverðri Evrópu höfða sterkt til ferðaþyrstra viðskiptavina. Ég hlakka til að leiða fyrirtækið inn í nýja tíma í ferðaþjónustu ásamt frábæru starfsfólki Nordic Visitor,“ segir Sigfús Steingrímsson framkvæmdastjóri Nordic Visitor.

Vísir, 24. janúar 2022

Viðskiptablaðið, 24. janúar 2022

Fréttablaðið, 24. janúar 2022

Previous
Previous

Miklar breytingar hjá Motus

Next
Next

Metfé til framtakssjóða og vísissjóða svalar uppsafnaðri þörf