Alfa Framtak fjárfestir í Hótel Umi

Alfa Framtak hefur samið um kaup á 100% hlut í Hótel Umi. Stefnt er að stækkun hótelsins.

Alfa Framtak hefur samið um kaup á 100% hlut í Hótel Umi, en endanleg viðskipti eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Fjárfestingin er gerð í gegn um sjóðinn Umbreytingu II slhf. og eignarhaldsfélagið AU 23 ehf. Sjóðurinn er með fleiri hótelverkefni til skoðunar en Alfa Framtak telur langtímahorfur í ferðaþjónustunni góðar.

Hótel Umi er 28 herbergja hótel á Suðurlandi sem opnaði 2017. Hótelið hefur getið sér gott orð fyrir þjónustu og gæði. Hjónin Sigurður M Sólonsson og Arnfríður Hjaltadóttir stofnuðu hótelið ásamt fjölskyldu og vinum. Sandra Dís, innanhúsarkítekt og lýsingarhönnuður, kom að hönnun hótelsins. Fjölskyldan hefur laðað að sér öflugu starfsfólki, sem mun halda áfram að sinna rekstrinum, má þar helst nefna hótelstýruna Önnu Kruczek og eiginmann hennar Jakub Kruczek.

Með aðkomu Alfa Framtaks er stefnt að því að styðja enn frekar við fyrirtækið og að tryggja framtíðarstöðu hótelsins. Fráfarandi eigendur hafa lagt áherslu á að byggja upp traust vörumerki, hafa stórbætt aðstöðu starfsmanna og eru nú að ljúka við uppbyggingu á spa aðstöðu sem Sandra Dís innanhúshönnuður og Arnar Grétarsson arkítekt hönnuðu.

Að sögn Sigurðar eru áform um stækkun á hótelinu og því þurfi bakhjarl á borð við Alfa Framtak. „Hótelið hefur vaxið verulega frá því að við opnuðum fyrst árið 2017 og teljum við framtíðarhorfur í greininni góðar. Stefnt er að því að stækka hótelið sem mun kalla á fjármagn og athygli eigenda. Við fögnum því aðkomu Alfa Framtaks sem hafa getið sér gott orð í uppbyggingu fjölskyldufyrirtækja og geta óskandi tekið hótelið á næsta stig. Eins viljum við þakka starfsfólki okkar fyrir frábært samstarf, ásamt öllum okkar góðu viðskiptavinum og gestum.“

Ferðaþjónusta er undirstöðu atvinnugrein á Íslandi sem hefur einnig þá sérstöðu að skapa fjölbreytt bein og afleidd störf víðsvegar um Ísland. Að mati Alfa Framtaks eru langtímahorfur góðar og þarf atvinnugreinin á fjárfestingu að halda til þess að geta annast þá miklu spurn sem er eftir því að heimsækja landið okkar.

Alfa Framtak ehf. er rekstraraðili sérhæfðra sjóða. Alfa Framtak sérhæfir sig í fjárfestingum og stuðningi við stjórnendur, athafnafólk og fyrirtækjaeigendur sem vilja ná því besta út úr sínum rekstri. Markmið félagsins er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi við sölu og þannig skilja eftir sig jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.

Previous
Previous

Alfa Framtak fjárfestir í Tixly

Next
Next

Fanndís til Alfa Framtaks