alfa framtak
Um okkur
Teymið
Við viljum vera þitt fyrsta val
Teymið okkar hefur sérþekkinguna til þess að fylgja þér alla leið. Við erum staðráðin í því að styðja við stjórnendur og athafnafólk sem vill leiða umbreytingar og gera góð fyrirtæki betri.
-

Gunnar Páll Tryggvason
Managing Partner
gunnar@alfaframtak.is
+354 618 4522Gunnar býr yfir 25 ára reynslu af framtaksfjárfestingum og fyrirtækjaráðgjöf. Hann hefur stýrt verkefnum í tíu löndum og setið í stjórnum fyrirtækja á borð við Refresco B.V., Hame S.r.o og Nordic Partners Ltd. Gunnar lauk MBA námi með láði frá Wharton Business School og námi í stjórnun frá Stanford. Hann hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
-

Anna Þorbjörg Jónsdóttir
Head of Client Solutions
anna@alfaframtak.is
+354 832 4030Anna Þorbjörg býr yfir yfir 20 ára reynslu af störfum á fjármálamörkuðum. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður eignastýringar hjá Fossum fjárfestingarbanka og var áður fjárfestingastjóri, einn stofnenda og stjórnarformaður World Financial Desk, hátækni fjármálafyrirtækis með aðsetur í New York. Anna situr í stjórn Lyf og heilsu. Hún er með M.A. gráðu í hagfræði frá UCLA og M.Sc. gráðu í fjármálastærðfræði frá USC og hefur lokið prófum í verðbréfaviðskiptum á Íslandi og í Bandaríkjunum.
-

Árni Jón Pálsson
Investment Director
arnijon@alfaframtak.is
+354 866 3601Árni Jón hefur starfað í rúman áratug á fjármálamarkaði og vann meðal annars í fyrirtækjaráðgjöf Icora Partners, þar sem hann vann að verkefnum á sviði fjármögnunar, endurskipulagningar og kaupum og sölu fyrirtækja. Áður starfaði hann hjá Arctica Finance og þar á undan Landsbankanum. Hann hefur gegnt ýmsum stjórnarstörfum, þar á meðal hjá skráða félaginu Heimavöllum og sem stjórnarformaður Borgarplasts og Málmsteypu Þorgríms Jónssonar. Árni Jón er með B.Sc. gráður í viðskiptafræði og fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
-

Rakel Guðmundsdóttir
Portfolio Manager
rakel@alfaframtak.is
+354 867 4181Rakel býr yfir mikilli reynslu af rekstri og stjórnun fyrirtækja en hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2018. Hún hefur meðal annars komið að verkefnum sem snúa að fjármálum, ferlum, hagræðingaraðgerðum, mannauðsmálum og breytingastjórnun. Rakel situr í stjórnum INVIT, Origo, Corus og Venja og hefur áður setið í stjórn Greiðslumiðlunar Íslands. Rakel er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
-

Markús Hörður Árnason
Investment Director
markus@alfaframtak.is
+354 669 4417Markús hefur víðtæka reynslu á fjármálamarkaði. Hann starfaði hjá TM á árunum 2008 til 2021 og fór þar fyrir fjárfestingum félagsins frá árinu 2015. Áður starfaði hann hjá fjárfestingarfélaginu Stoðum og Landsbankanum. Hann hefur gegnt stjórnarstörfum hjá félögum á borð við Reykjafell, Travel Connect, NP Innovation, Knox Holding, Thor Ice og Lyf og heilsu. Markús er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
-

Áslaug Gunnarsdóttir
Associate
aslaug@alfaframtak.is
+354 692 9995Áslaug býr yfir tíu ára reynslu af fjármálamörkuðum og hóf störf hjá Alfa Framtak árið 2023. Hún starfaði áður lengst af hjá Saxo Bank í Kaupmannahöfn, þar sem hún gegndi fjölbreyttum hlutverkum innan markaða, fjárstýringar og áhættustýringar og stýrði þar teymi. Áslaug situr í stjórnum Greiðslumiðlunar Íslands, KNOX Hotels og Samherja fiskeldis. Hún er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í Applied Economics and Finance frá Copenhagen Business School.
-

Hörður Guðmundsson
Vice President
hordur@alfaframtak.is
+354 776 0747Hörður hefur starfað hjá Alfa Framtak frá árinu 2020. Hann hefur gengt stjórnarstörfum í Lyf og heilsu, Málmsteypu Þorgríms Jónssonar, Syndis, Helix og Noona Labs. Hörður starfaði meðfram námi hjá GAMMA Capital Management og Viðskiptablaðinu. Einnig hefur hann sinnt dæmatímakennslu við Háskólann í Reykjavík í fjármálum fyrirtækja, tölfræði, hagrannsóknum og alþjóðahagfræði. Hörður er með B.Sc. gráðu í hagfræði og fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
-

Fanndís Sara Guðjónsdóttir
Finance & Operations
fanndis@alfaframtak.is
+354 699 5569Fanndís býr yfir fimm ára reynslu í fjármálum og rekstri og hóf störf hjá Alfa Framtak árið 2023. Hún kemur til Alfa frá Marel, þar sem hún starfaði á fjármálasviði. Meðfram meistaranámi sínu var hún starfsnemi í fjár- og áhættustýringu hjá Icelandair Group og starfaði áður sem skrifstofustjóri hjá Heimaleigu. Fanndís er með B.Sc. í hagfræði frá Kaupmannahafnarháskóla, MCF í fjármálum fyrirtækja og MBM í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
-

Bergsteinn Pálsson
Associate
bergsteinn@alfaframtak.is
+354 868 8179Bergsteinn hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 2017 og hóf störf hjá Alfa Framtak árið 2025. Hann kemur til Alfa frá Íslandsbanka, þar sem hann starfaði í fyrirtækjaráðgjöf bankans, en þar áður var hann hjá ACRO Verðbréfum. Bergsteinn er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Fin frá Háskólanum í Glasgow og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
-

Davíð Orri Davíðsson
Analyst
david@alfaframtak.is
+354 849 2192Davíð hóf störf hjá Alfa Framtak árið 2025 og kemur til félagsins frá KPMG, þar sem hann starfaði sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf. Með náminu starfaði Davíð sem aðstoðarkennari í stærðfræði og tók þátt í alþjóðlegri ráðgjafakeppni fyrir hönd Háskólans í Reykjavík. Davíð er með B.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
-

Heiðrún Ósk Jóhannsdóttir
Finance & Operations
heidrun@alfaframtak.is
+354 771 5581Heiðrún hóf störf hjá Alfa Framtak árið 2025 og kemur til félagsins frá Góðum samskiptum, þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri. Áður starfaði hún á viðskiptalausnasviði Deloitte. Hún er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og stundar nú meistaranám í fjármálum við sama skóla. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
-

Hjalti Þór Skaftason
Vice President
hjalti@alfaframtak.is
+354 846 0077Hjalti hefur starfað á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum frá árinu 2014 og komið að fjölmörgum verkefnum á sviði fjármögnunar og kaup- og sölu fyrirtækja. Hann hóf störf hjá Alfa Framtaki árið 2025. Hann kemur til félagsins frá Lífeyrissjóði Verzlunarmanna, þar sem hann bar ábyrgð á stýringu erlendra hlutabréfa og skuldabréfa sjóðsins. Áður starfaði hann í fjögur ár hjá Capital Four í Kaupmannahöfn sem verkefnastjóri á evrópskum skuldabréfa- og lánamörkuðum og þar á undan hjá Kviku banka. Hjalti er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum og er CFA handhafi.
Landið
Við erum stolt af Íslandi. Samfélag okkar byggir á traustum stoðum og þrátt fyrir að við séum fámenn þjóð hafa Íslendingar fengið frábærar hugmyndir sem eiga fullt erindi á alþjóðavísu. Hér er lítil skriffinnska og fólkið er fjölhæft og framtakssamt.
Okkar hlutverk er að virkja þessa framtakssemi og stuðla að jákvæðum framförum fyrir Ísland og umheiminn.
Smá þjóð – stór tækifæri
Pólitískur og efnahagslegur stöðugleiki
Hátt menntunarstig og mikil lífsgæði
Hentug staðsetning mitt á milli Evrópu og BNA
Nýsköpun, tækni og sjálfbær orka
Sagan okkar
Uppruni Alfa Framtaks
Alfa Framtak var stofnað árið 2017 af Gunnari Páli Tryggvasyni, Friðrik Jóhannssyni og Árna Jóni Pálssyni.
Í kjölfar efnahagshrunsins voru Friðrik Jóhannsson og Gunnar Páll Tryggvason fengnir í umfangsmikil verkefni á sviði fjárhagslegrar endurskipulagningar. Þetta leiddi til stofnunar Icora Partners árið 2010. Fyrirtækið starfaði fyrst og fremst á sviði fyrirtækjaráðgjafar ásamt því að vinna að langtímaverkefnum á Íslandi, Danmörku, Lettlandi og Tékklandi.
Milli 2010 og 2017 lauk teymið við 20 verkefni. Umfang þessara verkefna nam samtals yfir 200 milljörðum króna. Meðal helstu verkefna var fjárhagsleg endurskipulagning á Hamé og Laima, en umrædd fyrirtæki eru leiðandi vörumerki í evrópskri matvælaframleiðslu.
Fyrirtækið vann einnig að kaupum og sölu, fjármögnun og stefnumótun – meðal annars við sölu Hotel D'Angleterre í Danmörku og tryggingafélagsins Varðar á Íslandi.
Árið 2017 urðu vatnaskil í rekstri fyrirtækisins þegar það setti framtakssjóð á laggirnar auk þess sem nafninu var breytt úr Icora Partners í Alfa Framtak.
Samstarf með okkur
Reynsla, traust og samvinna
Hvernig getum við hreyft við þér?
Samstarf við Háskóla Reykjavíkur
Alfa Framtak leggur áherslu á að veita háskólanemum og ungu fólki tækifæri. Markmið starfsnáms okkar er að hjálpa nemendum að öðlast reynslu á vinnumarkaði ásamt því að auðga nám þeirra. Frá árinu 2015 hefur Alfa Framtak verið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og boðið upp á starfsnám fyrir nemendur við verkfræði- og viðskiptadeildir.