Kaupa Borgarplast og Plastgerð Suðurnesja
Framtakssjóðurinn Umbreyting hefur fest kaup á fyrirtækjunum Borgarplast og Plastgerð Suðurnesja. Borgarplast er leiðandi í hverfismótaframleiðslu fyrir innanlandsmarkað og bæði félögin framleiða vörur úr frauði, húsaeinangrun og frauðkassa til útflutnings á ferskum fiskafurðum og öðrum matvælum.
Eftir kaupin mun Umbreyting eiga 78% í sameinuðu fyrirtæki en aðrir hluthafar verða Haukur Skúlason, sem verður framkvæmdastjóri og Sigurgeir Rúnar Jóhannsson auk þess sem núverandi eigendur Plastgerðar Suðurnesja munu áfram verða í hluthafahópnum. Arion banki var ráðgjafi kaupanda. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Stærstu hluthafar Borgarplast voru Sjöfn Guðmundsdóttir og Guðni Þórðarson og hafa þau stýrt félaginu síðustu áratugi. Ráðgjafi seljanda Borgarplast var Deloitte.
Icora Partners er rekstraraðili Umbreytingar sem er 7 milljarða króna framtakssjóður sem hóf starfsemi árið 2018. Markmið Umbreytingar er að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja og stjórnenda þeirra. Áhersla verður lögð á að fjárfesta í fyrirtækjum sem búa yfir góðu og sannreyndu viðskiptamódeli og að stjórnendur hafi árangursmiðað hugarfar. Stefna Umbreytingar er að skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi en þegar þau voru keypt og þannig skilja eftir sig jákvæð fótspor í íslensku atvinnulífi.
„Verkefnið er krefjandi og felur í sér umbreytingu á rekstri og efnahag sameinaðs félags. Félögin eru hins vegar rótgróin og rekstur þeirra traustur. Við hlökkum til samstarfsins við nýja lykilstjórnendur og meðeigendur okkar og munum styðja félagið til frekari vaxtar,” segir Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdarstjóri Icora Partners.
„Verkefnið er spennandi og sjáum við mörg tækifæri til að sinna viðskiptavinum betur, nýjum og núverandi. Við munum sameina rekstur félaganna fljótlega og styrkja þau til vaxtar, innanlands og erlendis, auk þess sem við munum fjárfesta í nýjum vélum og búnaði og ná þannig fram frekari hagræðingu í framleiðslu,“ segir Haukur Skúlason, framkvæmdarstjóri.